Ágripabók
Hvenær
18. mars 2026
16:30 til 18:00
Hvar
Háskólatorg
HT-103
Nánar

Öll velkomin
Aðgangur ókeypis

 

Viðburðurinn Þjónustumenning sem lykill að árangri er samstarf faghóps í þjónustu- og markaðsstjórnun hjá Stjórnvísi og Rannsóknamiðstöðvar um markaðs- og þjónustufræði viðViðskiptafræðideild HÍ á ráðstefnunni Viðskipti og vísindi 2026. Markmiðið er að draga fram mikilvægi þjónustumenningar fyrir árangur skipulagsheilda en rannsóknir hafa sýnt að tiltekin fyrirtækjamenning leggur gjarnan grunninn að þeim árangri sem stefnt er að. Fyrirlesararnir hafa öll yfirgripsmikla þekkingu á þjónustustjórnun en dagskrá er eftirfarandi:

Magnús Haukur Ásgeirsson, Þjónustumenning, forsendur og ávinningur
Magnús er aðjúnkt við Háskóla Íslands og hefur áralanga reynslu af rekstri og stjórnun þjónustufyrirtækja. Í fyrirlestrinum fjallar hann um tilurð þjónustumenningar, hvernig slík menning myndast og hvernig skilgreiningar á henni hafa þróast. Einnig verður sýnt hvernig markviss uppbygging þjónustumenningar getur skilað betri frammistöðu, ánægðara starfsfólki, sterkari þjónustuupplifun gesta og auknum þjónustugæðum.

Anna Margrét Steingrímsdóttir, Þjónustumenning – áhrifaþáttur í árangri
Anna Margrét er framkvæmdastjóri Félags viðskipta- og hagfræðinga og fjallar í erindi sínu um hvernig þjónustumenning mótar árangur skipulagsheilda og hvernig innri markaðssetning spilar lykilhlutverk. Sjónum verður beint að því hvernig stjórnendur geta markvisst byggt upp menningu sem styður við jákvæða þjónustuhegðun sem skilar sér í aukinni starfsánægju og árangri.

Andri Geirsson, Að gera þjónustu áþreifanlega
Andri er teymisstjóri þjónustuhönnunar hjá þjónustu- og nýsköpunarsviði Reykjavíkurborgar. Í erindi sínu fjallar hann um hvað þjónusta er og hvernig hægt er að setja hana fram með myndrænum hætti. Dregið er fram af hverju þjónustumenning skiptir máli og hvernig hægt er að bjóða notendum „upp í dans.“

Guðrún Finnsdóttir, Hvort kom á undan, kúltúrinn eða þjónustan?
Guðrún leiðir kúltúr og fræðslumál hjá Nova. Í erindi sínu fer hún beint í kjarnann; fólk, liðsheild og þau ósýnilegu öfl sem skapa upplifun. Undirstrikar að áður en viðskiptavinurinn upplifir þjónustu, upplifir starfsfólkið vinnustaðinn.

Viðburðurinn verður haldinn á Háskólatorgi stofu HT-103 í Háskóla Íslands miðvikudaginn 18. mars og hefst kl. 16.30 og lýkur eigi síðar en kl. 18.00. Fundarstjóri er Unnur Líndal Karlsdóttir sem situr í stjórn faghóps í þjónustu og markaðsstjórnun hjá Stjórnvísi. Viðburðurinn er opinn öllum og hann gefur tækifæri til að kynnast faglegri nálgun og reynslu af þjónustustjórnun.

Dagskrá ráðstefnunnar

Deila