Viðskipti og vísindi 2026
Ráðstefnan Viðskipti og vísindi fer fram dagana 14.–20. mars 2026 og er haldin í fjórða sinn. Ráðstefnan er vettvangur þar sem fræðileg þekking og reynsla úr atvinnulífinu mætast, þegar fræðimenn, stjórnendur, sérfræðingar og leiðtogar fyrirtækja ræða þau viðfangsefni sem móta framtíð viðskipta og atvinnulífs.
Á dagskrá ráðstefnunnar eru fjölbreyttir viðburðir þar sem fjallað er meðal annars um fjármál, gervigreind, sjálfbærni, jafnrétti, fjölbreytileika, fjárfestingar, þjónustustjórnun og mannauðsstjórnun. Auk erinda fræðimanna taka til máls stjórnendur og sérfræðingar úr atvinnulífinu, þar á meðal fulltrúar fjármálafyrirtækja, ráðgjafarfyrirtækja og kauphallarfyrirtækja. Í erindum, pallborðsumræðum og sófaspjalli deila þau reynslu sinni af því hvernig ný þekking og ný tækni eru að breyta starfsháttum fyrirtækja og vinnumarkaði.
Ráðstefnan býður upp á einstakt tækifæri til að hlusta á nýjustu rannsóknir, fá innsýn í reynslu úr framkvæmd og taka þátt í umræðu um helstu áskoranir og tækifæri samtímans. Hún er opin öllum sem vilja efla þekkingu sína, hvort sem um er að ræða stjórnendur, starfsfólk fyrirtækja, nemendur, rannsakendur eða aðra sem hafa áhuga á þróun viðskipta og atvinnulífs.
Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands vonast til að ráðstefnan skapi verðmæta umræðu og ný tengsl milli háskólasamfélagsins og atvinnulífsins.
Kynntu þér dagskrá ráðstefnunnar og vertu með þegar kraftar viðskipta og vísinda sameinast.