Er gervigreindin að bjarga íslenskum fyrirtækjum – eða bara að pirra viðskiptavinina?
Gervigreindin er mætt af fullum þunga inn í íslenskt atvinnulíf. En erum við að nýta hana rétt, eða erum við bara að stökkva á vagninn í blindni og vona það besta? Executive MBA verður með spennandi viðburð þann 20. mars þar sem nokkrir af fremstu sérfræðingum og frumkvöðlum landsins koma saman. Þar verður m.a rýnt í raunveruleikann á bak við gervigreindarhype-ið.
Umræðan er komin á þann stað að við þurfum að hætta að tala um hvað gervigreind er, og byrja að spyrja hvar mörkin liggja.
Viðburðurinn fer fram í Veröld - Húsi Vigdísar, föstudaginn 20. mars kl. 14:30-16:00.